Sleifurinn
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
25.09.2008 20:13:09 / sleifur

Mayónesgölturinn út um allt

Það er ýmislegt búið að ganga á hjá mörhólknum að undanförnu. Er að koma mér í gír fyrir HM í nóvember. Þetta byrjar ágætlega fyrir utan það að líkamsþyngdin er heldur mikil miðað við power. Vigtaðist áðan 93,75 kg. Ég væri alveg sáttur við þessa þyngd ef ég væri að repsa 200 kg á kjötinu en það  ekki alveg innistæða fyrir því. Spurning um að fara að éta eitt vínber í hádeginu, 2 hrísgrjón í kaffinu og 1/3 af gulrót í kvöldmat. En allavega er mikill power í vændum hjá kallinum. Eina bakslagið er að það var að finnast brjósklos í bakinu. Kosturinn við það er þó kannski að loksins er búið að finna skýringu á þessu endalausa bakvæli í mér og hægt að fara að vinna í því. Lýsiskveðjur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 14:52:13 / sleifur

Whats up

Hef nú ekki skrifað neitt lengi. Vinnan búin að vera nokkuð busy og dramatíkin (melrose place-ismi) það mikil í powerheiminum að ég hef ekki skrifað um hann. Er annars kominn í sumarfrí fyrir nokkru síðan. Er tiltölulega nýkominn frá Krít þar sem ég og fjölskylda vorum í 2 vikur. Er annars að setja mig í powergír aftur þannig að ég á eftir að kíkja hérna við og við. Læt nokkrar myndir fylgja.

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/slangare.jpg?t=1217947860

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/RIMG0064re.jpg?t=1217948281

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/pics021re.jpg?t=1217948336

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/RIMG0075re.jpg?t=1217948365

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/krit002re.jpg?t=1217948405

http://i23.photobucket.com/albums/b371/sleifur/krit025re.jpg?t=1217948447

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 19:57:38 / sleifur

Nokkrar gamlar og nýjar myndir

Ingvar og Boris á Íslandsmótinu í bekk 2005

Völdundur (Ofsinn) í gymminu sem hann rak í Dugguvogi, líklega ´96

Íslandsmótið í bekk 2005

Mér sýnis þetta vera Kötturinn allur heltannaður. Líklega '96 í Garðaskóla.

Kobbi á Íslandsmótinu í bekk 2005.

Víkingur eftir Njálsmótið í bekk ´98


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 13:17:23 / sleifur

Mótin

Nú er ég búinn að keppa á 2 mótum undanfarnar 2 vikur og tók á þeim báðum 220 kg. Ég hélt að ég yrði betri á seinna mótinu en viku pest hefur greinilega tekið einhvern toll. Var með um 38,5 stig hita í gærkvöldi. Annars skiptir það ekki máli, met er met og ef ég er eitthvað ósáttur með árangurinn get ég bara stofnað nýtt samband. Mér finnst að það ættu að vera um 300.000 sambönd á Íslandi, eitt fyrir hvert mannsbarn, en það er bara mitt álit.

Mér finnst þessi klofningur í Kraftlyftingum ekki skemmtilegur, þessu fylgir leiðinlegur mórall, menn að reyna að grafa undan hvor öðrum, einokun og annar fornaldarkommúnismi, verið að stilla fólki uppvið vegg og ýta því út í að velja á milli einhvers sem það er ekki búið að gera hug sinn upp um.

Sumir velja það að æfa í sínu horni og taka ekki þátt í kraftlyftingum á Íslandi. að mörgu leiti skil ég það að sumir vilji ekki taka þátt í þessu yfir höfuð.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 19:52:52 / sleifur

Tannlæknar og fleira

Ég er hérna að jafna mig eftir hrikalegt Parkódín Forte át. En ég er búinn að vera að jafna mig eftir að tannsi níddist aðeins á mér í morgunn. Málið er að ég er að láta smíða í mig 6 krónur í efri skoltinn, svo ég geti kannski farið að brosa aftur allavega aðeins, gallinn við þessar krónur eru að þær eru dýrar og kosta aðeins meira en 6 krónur, ég hef þó pínu áhyggjur af því að fegurðin fari hreinlega úr böndunum við þetta, en ég fann myndir af mér á netinu þar sem ég sá æfingarskvipinn á mér og þarf ég þar ekkert að hafa of miklar áhyggjur af mikilli fegurð, er með mikinn og framstæðan skúffukjeft. get þó huggað mig við það að sumir eru ekkert fallegri og enn aðrir reyna að bæta sig upp með að bera sig í helstu powerhornum landsins. Svona er að borða mikið Parkódín Forte, þá skrifar maður bara vitleysu.

En það að vera munnljótur við æfingar þýðir bara meiri andi. Allavega er formið fínt. Stefnan er tekin á Íslandsmótið í bekk í jan/feb og er undirbúningur að komast í gang. Tók 170 kg um daginn 5 reps sem er mitt besta og hef ég aldrei verið í svona góðu formi þetta löngu fyrir mót. Það þýðir bara eitt, hrikalegar bætingar hjá Senior Skúffukjafti.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 21:56:02 / sleifur

Valdi????

Ég var að skoða einn helli um daginn þegar ég rakst á þetta. Sumum hefði nú brugðið. En þar sem ég hef stáltaugar og ljónshjarta mikið þá kippti ég mér ekki mikið upp við þetta. Það eina sem mér brá við að sjá var andlitið.. þar sem mér sýndist þetta vera Valdi krúnurakaður.

                                                                                                                                                         


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:18:33 / sleifur

Meiri andi í Silfursporti

Ég tók bekk í dag með Valda yfirbollu en við vorum ekkert í neinum yfiranda. Ég byrjaði á að taka 140 kg x 8 reps og tók Valdi það þá 11 reps. Fór Valdi svo í 160 kg x 5 reps en ég fór aðeins í 145 og tók það 8 reps. Ég gat þó ekki verið minni maður í pumpinu (þótt líkamlega sé ég "minni maður";) og endaði á að taka 140 kg x 11 reps og jafnaði það Valdann.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:57:59 / sleifur

Andi í Silfursporti

Það er rétt að það er mikill andi í Silfursporti. Var að koma af góðri bekkpressuæfingu. Formið er nokkuð gott miðað við það allavega að ég er ekki að stefna á neitt mót fyrr en Íslandsmótið í janúar/febrúar. Fór í dag í 160 kg x 5 reps og svo 170 kg x 3 reps. Margir voru að taka á því í bekknum í dag og fór Gaui krani til dæmis í 160 kg x 1 reps, Ingvar tók 210 kg x 1 reps með stoppi. Big Ben tók svo 225 kg x 1 reps og svo tók hann 200 kg x 5 reps með góðu stoppi í síðasta repsinu. Það er virðingarvert hvað þessir "eldri" kallar halda sér hrikalegum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 23:12:10 / sleifur

Almennt bull bara

Kallinn er alltaf jafn latur við þetta. Var annars bara að koma heim. Er búinn að vera á fullu að undirbúa stórafmæli hjá pabba en hann er að verða áttræður. Spáið í það, hann gæti verið afi Bóndans (father time), svona alveg næstum því allavega, svona grandfather time. Margir segja að ég sé örverpi sökum aldurs foreldra minna, kannski fyrsta örverpið sem á yfir 200 í bekk, svo á ég yngri systur . Hún á ekki 200 í bekk, sem betur fer.

En burtséð frá því þá er mikið að gera um þessa helgi. Afmæli hjá pabba á morgunn, og svo afmæli Fjölnis fóstursonar míns á sunnudaginn. Svo er annað afmæli annað kvöld, og líka búið að bjóða mér í sumarbústað sem er uppfullur af pervertum.

En ég er að fara í sófann núna gráta mig í svefn yfir "Desperade Housewifes" seríunum mínum. Eða var það "Desperate Shemales"... skiptir ekki máli, sami hluturinn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 22:50:01 / sleifur

Ekki dauður enn.

Fólk spyr hvort að ég sé dauður, nei greinilega ekki. Héðinsmótið er greinilega búið, þar tók kallinn nýtt met í -90 kg flokki í bekknum 218,5 kg. Ég hef verið að rembast við að setja nokku vídeó frá mótinu en allar vídeó síður sem ég hef prófað sökka feitt svo það hefur ekki gengið. Vitið þið  um einhverjar síður? Aðrar en youtube.

Annars er bara pump í gangi núna, 8-10 reps og fjör. 150 kg fór 8 reps í gær þannig að einhver styrkur er í gamla ennþá.

 Þar sem ég er í sumarfríi núna ætla ég að fara að reyna henda inn færslum hér og þar, þar sem hellingur hefur svo sem skeð.

 Læt fylgja mynd af góðvini mínum í þungum þönkum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 18:35:35 / sleifur

Herra Latur

Blogglatur ætlar að koma með smá færslu. Ég er að verða eins og Sóley og Hafdís í þessu ss laaattttuuur. En ég er allavega búinn að vera að undirbúa mig fyrir Héðinsmótið. Tók 212,5 kg á síðasta föstudag, stoppið var þó eflaust ekki nógu langt, en ég er ekki vanur að klikka á því á mótum. Síðasta þunga æfingin er á morgunn og ætla ég þá ekki alveg upp í topp heldur ætla að láta mér nægja 200-205 kg og athuga hvernig frískleikinn er með góðu stoppi.


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 17:57:00 / sleifur

Quasimodo

Þessi leti er alveg ótrúleg. Maður er alveg hættur að sinna "aðdáendunum". Ég er búinn að vera eins og krypplingur undandarið og hef verið kallaður hinum ýmsu ónefnum í vinnunni og strítt mikið. Ég tognaði í bakinu í fyrsta skipti í bara mörg ár og hef gengið eins og nýstiginn útúr fangelsi. Ég hef verið kallaður hinum ýmsu ónefnum eins og Quasimodo, Hunchback, afi og Hatchback. Ekki fallegt. En ég stefni á Héðinsmótið og ætla að reyna að gera eitthvað af viti þar í bekknum. Formið er nokkuð gott fyrir utan þetta bakvesen.

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 16:25:11 / sleifur

Sleifurinn lifandi

Æfingarnar hjá kallinum ganga bara vel þessar mundir. Hef verið dágóða stund í 5 repsum og þar áður í 8 repsum. Pantaði mér slopp frá Metal í Finnlandi og prófaði hann í gær. Fíla mig alltaf hálfskrýtinn í nýjum sloppum, alltof stífir og næ sjalda því besta útúr mér. Lenti í því sem kallað er "Brúnóerfiðleikar" þ.e.a.s. erfiðleikum með að koma vigtinni niður. fór í 210 kg sem var nokkuð frískt en vildi ekki alveg niður. Þetta er víst ekki eins og í gamla daga þegar maður var að streða við að koma þyngdunum upp. Vídeo af lyftunum eru á kraftaheimar.net.

Ég veit ekki alveg hvað er næst á dagskrá, er bara að æfa svona almennt, en það gengur vel. Er að spá í að kíkja á bikarmótið í haust og gera eitthvað af viti á bekknum með hinum greinunum. Ég hef í fyrsta sinn í mörg ár núna verið að taka beygjur í dýpt og vona ég að þær skáni eitthvað. Maður verður nú að fara að beygja meira en maður kurlar.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 20:43:08 / sleifur

Ekkert streð... fyrir Fjeldsteð...

Það má segja að Gaui hafi staðið sig mjög vel á Íslandsmóti Kraft..... afsakið KAUPÞINGS Íslandsmótinu eins og það hét. Hann tók 300 í beygjum og 215 í bekk sem er nýtt Íslandsmet. Það er kominn tími á að það fari að hrærast í þessum unglingametum í bekkpressu. Lítið skeð í þeim síðan Sleifurinn varð gaaamall. 215 kg er mjög öflugt met í -100 kg flokki. Ég vil óska Gauja til hamingju.


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 22:27:49 / sleifur

Pervertar

Jæja nú fer að styttast í Akureyri. Ég og Kristín ætlum ekki að láta okkur vanta. Ég man hvað ég var fúll yfir að komast ekki síðustu páska sökum anna í vinnunni. Mér er þó minnisstætt eina andvökunóttina þegar ég var búinn að rennbleyta koddan með sætum tárum yfir því að komast ekki............þá fékk ég myndskilaboð frá Oddnew af Smára á djamminu..... með nightvision gleraugu. Tvíbökurnar áttu þessi gleraugu en voru oft að reyna að selja mér þau,,, jájá auðvitað kaupir Ísleifur þau um leið.. hann er nefnilega þessi týpa sem er í görðum hjá fólki með popppoka og kíki ,,, giving himself a treat. Meiri kallarnir... en hér er Gaui berrassaður.

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  36  Alls: 93595